Um VOX RestaurantÁ VOX starfar teymi töframanna sem laðar fram það besta úr norrænu hráefni og umhverfi. Yfirmatreiðslumeistarinn Stefán Viðarsson er hugmyndaríkur og þaulreyndur, hann leggur áherslu á glæsilegt útlit rétta og pottþétta uppsprettu hráefnis.
Páll Hjálmarsson Veitingarstjóri VOX er framúrskarandi á sínu sviði. Hann hefur innleitt afslappaða stemmningu í þjónateymið, viðmót sem miðar að því að upplifun gesta verði eftirminnileg fyrir fleira en bragðgæðin.
Fjórfaldur Vínþjónn ársins á Íslandi, Alba E.H.Hough, er skarpur smakkari og enn betri ráðgjafi. Með einn stærsta og metnaðarfyllsta vínlista landsins að vopni sér hún til þess að vín og matur fari ævinlega vel saman.
Hefurðu hug á að halda veislu eða ertu með spurningu, hafðu þá samband við Veitingarstjórann okkar,
Páll Hjálmarsson, og mun hann aðstoða þig.