Norræn matargerð á VOX Restaurant

Vetur, sumar, vor og haust getur þú notið þess besta sem er í boði hjá okkur á veitingastaðnum VOX. Um er að ræða árstíðabundinn veitingastað sem setur nýnorræna matargerðalist í fyrsta sæti.

Við verslum inn séríslenskt hráefni eftir fremsta megni og notum lífrænt ræktaðar vörur umfram aðrar þegar það er í boði. Við notumst aðeins við hráefni sem auðvelt er að nálgast og úr okkar nánasta umhverfi.

Hollusta er veigamikill þáttur á VOX og manneldismarkmið Lýðheilsustöðvar höfð að leiðarljósi í matargerðinni hjá okkur enda er rjómi og smjör notað í lágmarki og aðeins þar sem það á sérstaklega við.

Sköpunargleðin ríkir á VOX sem hjálpar okkur að ná þeim markmiðum sem við setjum okkur. Með þrotlausri vinnu og áframhaldandi reynslu verður VOX áfram í fremst í flokki á meðal jafninga.  

Yfirlýsing um nýja Norræna matargerðarlist

Við, norrænir kokkar, teljum tímabært að skapa Nýja norræna matargerðarlist, þar sem bragðgæði og önnur sérkenni eru fyllilega sambærileg við fremstu matargerðarlist í heiminum.

Ný norræn matargerðarlist á að:

  1. Einkennast af hreinleika, ferskleika, einfaldleika og siðferði sem við viljum tengja við okkar heimshluta
  2. Endurspegla árstíðirnar í máltíðunum
  3. Byggja á hráefni sem vex við framúrskarandi skilyrði í loftslagi okkar, náttúru og vötnum
  4. Sameina kröfuna um ljúffengan mat og nútíma þekkingu á heilsu og vellíðan fólks
  5. Efla fjölbreytni norrænna afurða og úrval framleiðenda og breiða út þekkingu á menningarumhverfi matarins
  6. Efla velferð dýra og sjálfbæra þróun í hafi, á ræktuðu landi og í óbyggðum
  7. Þróa nýjar vinnsluaðferðir á hefðbundnum norrænum matvælum
  8. Flétta saman bestu norrænu matreiðsluaðferðir og matarhefðir sem völ er á við utanaðkomandi hugmyndir og áhrif
  9. Sameina sjálfsþurftarbúskap og vöruskipti á hágæða afurðum milli svæða í þessum heimshluta
  10. Bjóða neytendum, öðrum matargerðarmönnum, fulltrúum landbúnaðar og fiskveiða, stórum og smærri matvælafyrirtækjum, kaupmönnum og dreifingaraðilum, vísindamönnum, kennurum, stjórnmálamönnum og yfirvöldum til samvinnu að sameiginlegu verkefni, sem verði öllum Norðurlandabúum til gagns og gleði.

Frekari upplýsingar um nýja norræna matargerðarlist má nálgast hér