Fara í efni

Jólin 2014 á VOX og Hilton

Á Hilton Reykjavík Nordica bjóðum við upp á jólastemningu í margvíslegum myndum. Jólin á VOX 2014
Njóttu þess að láta okkur koma þér í jólaskap.

Jóladýrðin á Hilton er einstök
Ævintýraleg umgjörð og unaðslegar kræsingar frá matreiðslumeisturum VOX. Jógvan Hansen, Pálmi Sigurhjartar og Erna Hrönn skemmta gestum yfir borðhaldi og í lok kvölds sláum við upp alvöru dansleik sem stendur til kl. 01:00.

Opnað verður inn í forsalinn kl. 19.00 og viljum við því minna ykkur á Happy Hour á milli kl. 17.00-19.00 á VOX Lounge og Lobby Bar.
Jólahlaðborðið hefst 21. nóvember og lýkur 13. desember - öll föstudags- og laugardagskvöld.
Verð per mann 9.400,-

Smelltu hér til að skoða matseðilinn (pdf)

Við bjóðum einnig stærri hópum upp á jólahlaðborð í sérsal á annarri hæð hótelsins sem rúmar allt að 200 manns.

Jólabrunch & jólalunch á VOX Restaurant
Jólabrunch á Hilton er ómissandi hluti af aðventunni. Tryggðu þér borð í tíma. Frá miðjum nóvember verður hið sívinsæla hádegisverðarhlaðborð VOX komið í jólabúning.
Verð per mann 4.900,-
Jólabrunch byrjar 22. nóvember og er í boði allar helgar til jóla.
Jólalunch byrjar 24. nóvember og er í boði alla virka daga fram til jóla.
Pantaðu borð hér eða í síma 444 5050. 

Haltu jólin eða áramótin á VOX Restaurant
Á jólahátíðardögunum bjóðum við sérstaka hátíðarseðla sem leika svo sannarlega við bragðlaukana.
Verð kr. 16.500 á mann. 

Aðfangadagur - hátíðarseðill
Jóladagur - hátíðarseðill
Gamlársdagur - Hátíðarseðill
Nýársdagur - Hátíðarseðill

Við komum með jólin til þín
Meistarakokkar VOX Restaurant á Hilton koma í fyrirtækið þitt með jólahlaðborð og jólastemningu.

Jólapartý á VOX CLUBJólin 2014 á VOX og Hilton
Það verða skemmtileg jólapartý á VOX CLUB með standandi og sitjandi borðhaldi og léttum veitingum við allra hæfi.
Verð per mann 7.200,-

Jólaboð á Hilton
Við bjóðum fjölskyldum og vinahópum að koma saman á Hilton í stað þess að halda jólaboð í heimahúsi. Njóttu jólanna með þínu fólki og láttu okkur sjá um undirbúninginn.

Jólalegir fundir
Frá 17. nóvember bjóðum við jólalega fundi á Hilton. Heitt súkkulaði og jólasmákökur og fundarpakkar í jólabúningi.

Nánari upplýsingar í síma 444 5052 eða hilton(hjá)hilton.is