Fréttir
Food and Fun 2012 á Vox
Ekki missa af þessum viðburði
Eins og undanfarin ár verður erlendur gestakokkur á VOX sem matreiðir girnilega rétti ásamt meistarakokkum VOX. Við tökum forskot á sæluna og bjóðum upp á Food and Fun matseðill strax á miðvikudeginum 29. febrúar og heldur gamanið áfram til laugardagsins 3.mars.
Food and Fun á VOX
- Miðvikudag og fimmtudag 29. Feb og 01.Mars kr. 6.900.- á mann
- Föstudag og laugardag 2 - 3mars kr. 7.400.- á mann
- Lokað sunnudaginn 4. mars
Við munum kynna gestakokk VOX þegar nær dregur. Þess má geta að undanfarin 2 ár hefur gestakokkur VOX sigrað Food and Fun keppnina (Allan Paulsen frá Danmörku sigraði í 2010 / Finninn Matti Jamsen 2011).
kveðja
Starfsfólk VOX
Date 15.02.2012
VOX Restaurant lokað dagana 8. - 11. janúar
VOX Restaurant lokar Sunnudagskvöld 8.Janúar að kvöldi til og opnar aftur fimmtudag 11. janúar vegna breytinga.
Bistro matseðill verður í boði á VOX bar frá 11:30 - 22:30.
Sami opnunartími verður á barnum þessa daga frá 10:00 - 01:00
Morgunverður verður framreiddur í sal B frá mánudags - fimmtudagsmorgun.
kveðja
Starfsfólk VOX
Date 07.01.2012
Matreiðslumaður ársins 2011
Glæsilegur árangur náðist í keppni um titilinn Matreiðslumaður ársins 2011. Tveir þátttakendur frá VOX enduðu í efstu sætunum. Sigurður Kristinn Laufdal Haraldsson frá VOX sigraði og er Matreiðslumaður ársins 2011. Fannar Vernharðsson frá VOX varð í þriðja sæti. Úrslitakeppnin fór fram í Hótel- og matvælaskólanum 18. September 2011.
Heildarúrslit urðu þessi:
1. sæti - Sigurður Kristinn Laufdal Haraldsson, VOX
2. sæti - Ólafur Ágústsson - Sjávarkjallarinn
3. sæti - Fannar Vernharðsson - VOX
Við óskum Sigurði og Fannari til hamingju með árangurinn.
Date 19.09.2011
Sigurvegari í framreiðslu nema 2011
Elín Bogga Þrastardóttir frá VOX Restaurant varð sigurvegari í framreiðslu nema ásamt Eydísi Rut Ómarsdóttur frá Fiskfélaginu. Mun hún taka þátt fyrir hönd Íslands í Norrænu nemakeppninni.
Við óskum Elínu Boggu til hamingju með árangurinn.
Date 19.09.2011
Hesta brunch í tilefni af Hestadögum í Reykjavík
Vikuna 26.mars til 2.apríl munu standa yfir Hestadagar í Reykjavík 2011 vítt og breytt um höfuðborgarsvæðið. Með Hestadögum í Reykjavík er stigið mikilvægt skref í kynningu á íslenska hestinum í vetrarbúningi. Borgarbúum og gestum gefst einstakt tækifæri til að komast í nána snertingu við íslenska hestinn í borgarumhverfinu og er stefnt að því að um árvissan viðburð verði að ræða í borginni. Sjá nánar hér.
Í tilefni af Hestadögum mun VOX Restaurant á Hilton Reykjavík Nordica, bjóða upp á „Hesta brunch“ laugardaginn 2.apríl milli kl.11:30 og 14:00 og eru allir hestamenn hvattir til að fjölmenna.
09.03.2011
Gestakokkur VOX Restaurant, Matti Jamsen, er sigurvegari Food and Fun 2011
Eins og í fyrra sigraði gestakokkur VOX Restaurant í Food and Fun. Allan Paulsen frá Danmörku sigraði í fyrra en í ár er það Finninn Matti Jamsen sem sigraði eftir spennandi keppni við Ecen Ramsvik og Andreas Andersson.
Með vel skipulögðu og þjálfuðu starfsliði VOX Restaurant og hæfileikum Matti Jamsen var útkoman gómsætur sigur.
Við óskum Matti Jamsen innilega til hamingjum með titilinn, Food and Fun kokkur ársins 2011.
Vegna mikilar eftirspurnar og í tilefni af góðum sigri Matti Jamsen bjóðum við upp á Food and Fun matseðilinn til 19. mars.
09.03.2011
Food and Fun hófst í dag á veitingastaðnum VOX
Food and Fun hátíðin hófst með blaðamannafundi á veitingastaðnum VOX í dag. Kynntir voru til sögunnar hinir fjölmörgu erlendu matreiðslumeistarar sem hingað eru komnir til að taka þátt í hátíðinni ásamt fulltrúum íslenskra veitingastaða.
Food and Fun hátíðin sem stendur yfir dagana 9. til 13 mars er nú haldin í tíunda sinn og verður með veglegasta móti í tilefni afmælisins. Eins og áður mun hún setja mikinn svip á borgina og er gert ráð fyrir því að allt að 20.000 gestir muni sækja veitingastaði borgarinnar á meðan á hátíðinni stendur. Erlendu gestakokkarnir munu elda fjögurra rétta máltíðir á helstu veitingastöðum borgarinnar en á laugardag munu svo matreiðslusnillingarnir keppa um titilinn Food and Fun kokkur ársins.
Finninn Matti Jamsen tekur tímabundið við stjórninni í eldhúsi VOX meðan á Food and Fun stendur. Hann varð í 5. sæti í hinni óopinberu heimsmeistarakeppni í matreiðslu, Bocuse d‘Or í ár og auk þess er hann að taka við G.W. Sundmans sem er lengi búinn að vera einn af topp veitingastöðum í Helsinki.
Food and Fun snýst um að dekra við bragðlaukana og gefur matseðill Matti Jamsen og kokkanna á VOX vissulega fyrirheit um það.
Nálgast má Food and Fun matseðill VOX Restaurant hér
12.11.2010
VOX Restaurant hlýtur toppeinkunn hjá Gestgjafanum
Tímaritið Gestgjafinn býður lesendum upp á vandaða veitingahúsarýni þar sem tveir ólíkir aðilar meta staðinn í sitthvorri heimsókninni alveg óháð mati hvors annars. Hefur þetta fyrirkomulag þótt gefa raunhæfa en um leið áhugaverða sýn á frammistöðu staðarins.
Það er skemmst frá því að segja að VOX Restaurant fékk afbragðsdóma hvort sem um var að ræða mat, þjónustu eða umhverfi. Hér má sjá PDF útgáfu af greininni.
20.09.2010
VOX Restaurant tilnefnt sem besta veitingarhús á Norðurlöndunum
VOX Restaurant hefur lengi verið í flokki bestu veitingarhúsa á Íslandi og var á dögunum tilnefnt til The Nordic Price verðlaunanna sem besta veitingarhús á Norðurlöndunum en VOX Restaurant var einnig tilnefnt í fyrra. Danska veitingarhúsið Noma hlaut verðlaunin 2009.
Frekari upplýsingar um The Nordice Price verðlaunin: http://thenordicprize.org
