VOX Restaurant in Reykjavik.

VOX Vín

Hin nýnorræna stefna í matargerð felst í því að Norðurlöndin leiða saman hugsjónir sínar í matargerðarlist en grundvöllur þeirra er að tjá hreinleika og hið upprunalega. Fjölbreyttur vínseðill er síðan tenging þessarar stefnu við umheiminn.

Í þessu sambandi eins og öllu öðru, felst kjarni hins sérstaka ekki eingöngu í hinu eina og staka, heldur í hæfninni til að vera samferða án þess að tapa sérkennum sínum. Þetta á einkum við þegar um er að ræða samspil matar og víns.

Aðlögunarhæfni er hornsteinn vínlistans þegar eldhúsið dregur upp mynd af hverri árstíð fyrir sig og þannig verður sveigjanleiki að aðalsmerki hans.

Sá vínlisti sem einn og sér stendur fyllilega fyrir sínu en leikur jafnframt á strengi sköpunarinnar í matargerðinni, styður hana og speglar stefnu hennar, gerir meira en að bæta hana upp; hann er líka eðlileg framlenging matseðilsins.

Með sköpunarverk þekktra, stórra vínframleiðenda að vopni, auk úrvals þeirra smærri sem leggja megináherslu á að endurspegla sérstaka eiginleika sinna héraða, vonumst við til að stilla þorsta og örva samhljóm skilningarvitanna.

Til þess að sjá vínlista VOX Restaurant smellið vinsamlegast hér