Fara í efni

High Tea

Að hittast á eftirmiðdögum yfir High Tea er orðinn fastur liður hjá mörgum fjölskyldum á Íslandi. Eins er tilvalið að panta borð í High tea þegar um ræðir óformlega fundi og njóta góðra veitinga í fallegu umhverfi. High Tea er tilvalin leið til að bjóða uppá eitthvað öðruvísi.

VOX High Tea

Skemmtileg bresk hefð sem rekja má til fyrri hluta 19. aldar þegar verkamenn fengu staðgóðan síðdegisverð sitjandi á háum stólum en af þeim er nafnið High Tea dregið.

High Tea í boði á VOX alla daga vikunnar frá kl. 14:00 -16:30. 

VOX High Tea *
Kr. 4.900.- kaffi eða te innifalið

*Fyrir 2 að lágmarki / verð á mann.

 

Anda rillette á brioche brauði með sýrðum rifsberjum
~
Léttreyktur lax á súrdeigsbrauði með piparrótarsósu
~
Íslenskir ostar, chorizo, parma skinka og ólívur
~
Enskar skonsur, berjasulta og þeyttur rjómaostur
~
Makkarónur, döðlukaka, brownie, sörur og fersk ber

 

Borðapantanir í síma 444 5050 eða í tölvupósti á vox(hjá)vox.is

Öll verð eru í íslenskum krónum. Innifalið í verði eru þjónustugjald og virðisaukaskattur.
Ef um óþol eða ofnæmi er að ræða, vinsamlegast látið þjóninn ykkar vita.